meðferð máls og úrskurður forseta.
Frú forseti. Ég vildi gera smá athugasemdir við það sem kom fram í máli hv. þm. Ásthildar Lóu Þórsdóttur áðan sem kom inn á að það hafi tekið einhvern tíma að fá álit Lagastofnunar Háskóla Íslands og þar með hafi það ekki gengið upp. Þetta er náttúrlega enginn málflutningur. Það verður líka að hafa það í huga að málið fær flýtimeðferð í þinginu í október, fer inn í nefnd og verður að þingmannamáli í nefndinni eins og kom fram í máli hv. þm. Jóns Gunnarssonar. Þetta minnir mig líka töluvert á síðastliðið vor í atvinnuveganefnd þegar við vorum að ræða strandveiðar, veiðigjöld og þessi mál, hversu erfitt var einmitt að fá Fiskistofu, Hafrannsóknastofnun og ráðuneyti til að koma fyrir nefndina, dálítið sömu stofnanir eins og eru núna varðandi grásleppuna. Þetta er fyrst og fremst bara heimatilbúinn vandi. Það er ekki búið að nýta tímann. Það er ekki búið að vera með (Forseti hringir.) vönduð og öguð vinnubrögð í nefndinni. Þetta er allt saman heimatilbúinn vandi sem er búið að búa til í kringum þetta mál. Það að þetta sé komið í þessa stöðu og einhverja ótrúlega flýtimeðferð í þessu máli er farið (Forseti hringir.) að minna svolítið á strandveiðarnar síðastliðið sumar. Það var bara fært á milli ráðuneyta. Nú er spurning hvort þetta mál gæti farið þannig.