157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

meðferð máls og úrskurður forseta.

[19:06]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Forseti. Nú liggur fyrir úrskurður forseta og ég heyri það hér í umræðunni að verið er að vísa til fordæmis á síðasta kjörtímabili þegar sú sem hér stóð var formaður hv. allsherjar- og menntamálanefndar og neitaði þá á lokametrum vinnu við útlendingafrumvarpið að kallað væri eftir áliti frá Lagastofnun Háskóla Íslands. Ég ætla að minna hv. þingmann á að þá vorum við með stjórnarfrumvarp sem hafði verið unnið eftir öllum reglum Stjórnarráðsins um hvernig á að vinna frumvarp. Það hafði verið lagt mat á það hvort frumvarpið stæðist stjórnarskrá en aldrei datt mér í hug að neita um gestakomur. Við leystum þetta þannig í allsherjar- og menntamálanefnd að það voru kallaðir til sérfræðingar frá háskólanum sem mættu á fund nefndarinnar og svöruðu spurningum nefndarmanna. Ég hef reyndar ekki heyrt neinn þingmann Samfylkingarinnar koma hér upp og efast um lögmæti þeirra breytinga sem við gerðum á útlendingalögunum eða efast um að þær breytingar hafi verið góðar eða af hinu rétta.

Virðulegur forseti. Ég verð að frábiðja mér allan málflutning um að formennska mín í allsherjar- og menntamálanefnd á síðasta kjörtímabili hafi verið í einhverri líkingu við það sem hér hefur verið lýst í dag.