157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

spurningar til ráðuneytis og frumvarp um almannatryggingar.

[19:23]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Nú hefur okkur tekist að afgreiða nokkur mál, flest í fullri sátt. Því vil ég spyrja virðulegan forseta hvort það sé ekki hægt að hlutast til um það við hv. meiri hluta atvinnuveganefndar hvort það sé hægt að hlusta á tillögu eða boð minni hlutans í atvinnuveganefnd um það að atvinnuvegaráðuneytið fái svigrúm til að svara þeim spurningum sem Lagastofnun Háskóla Íslands átti að svara. Fyrst þau treysta ekki Lagastofnuninni til þess, treysta sér ekki til að fá svör, hvort þau treysti þá ekki alla vega sínu eigin ráðuneyti til þess að svara þessum spurningum þannig að það hafi þó alla vega einhver farið yfir þessa frábæru greinargerð meiri hlutans í þessu máli og staðfest að hún sé rétt unnin.

Virðulegur forseti. Er hægt að fá svör um það hvort þetta sé eitthvað sem er til umræðu?