157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

spurningar til ráðuneytis og frumvarp um almannatryggingar.

[19:24]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Nú ber svo vel í veiði að hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra er hérna í þingsalnum og ég tel rétt að varpa til hans spurningu, með þá von í brjósti að hann bíti á agnið og svari spurningunni, um hið fræga launavísitölumál sem gagnrýnt er út um allar trissur og var vísað úr þingsal til hv. velferðarnefndar á milli 2. og 3. umræðu til þess að fá málefnalega umræðu um málið og til þess að leita svara hjá þeim sérfræðingum sem hafa verið að blanda sér í umræðuna eftir að málið fór í 2. umræðu, óska eftir gestakomum og þess háttar. Hins vegar var mér að berast tölvupóstur með drögum að nefndaráliti, að öðru nefndaráliti til 3. umræðu, og það er stefnt að því að taka málið út í fyrramálið. Mér var að berast þessi póstur núna. Það væri fróðlegt að vita hvort þetta sé í samráði við hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra vegna þess að ég fæ ekki betur séð en að haft sé eftir honum í fréttum í dag að hann telji málið að einhverju leyti gallað, það þurfi að lagfæra það og það sé einmitt kjörið tækifæri til þess að gera það milli 2. og 3. umræðu.