spurningar til ráðuneytis og frumvarp um almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Ég vil bregðast við orðum hv. þm. Sigríðar Á. Andersen varðandi þær fullyrðingar að ég telji málið gallað. Það er alrangt. Ég hef aldrei talið málið gallað. Ég minntist hins vegar á það í viðtali í morgunútvarpinu á Rás 1, þar sem ég var að svara þeirri gagnrýni sem hefur verið á málið, m.a. frá fjölda aðila sem hafa hvorki hingað til né held ég nokkurn tímann tekið upp málstað kjarabaráttu öryrkja og eldri borgara — það sem ég sagði í þessu viðtali var að það eina í þessari gagnrýni sem ég teldi vert að skoða væri hvort hluti af greinargerðinni, lögskýringargagni við frumvarpið, ætti mögulega heima í frumvarpinu sjálfu. Það verður þá velferðarnefndar að taka ákvörðun um það og ég get ekki svarað öðru leyti fyrir velferðarnefnd.