157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

spurningar til ráðuneytis og frumvarp um almannatryggingar.

[19:27]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Frú forseti. Nú er ég gapandi. Málinu var vísað aftur til nefndar. Það var sérstaklega óskað eftir því hér í þingsal að það fengjust viðbrögð við þeim alvarlegu ábendingum sem fram hafa komið um þetta mál. Við höfum ekki enn fengið almennileg viðbrögð, hvorki frá fagráðuneytinu né fjármálaráðuneytinu, við því sem fjármálaráð segir um fjármálaáætlun. Auðvitað er nauðsynlegt að nýr hæstv. ráðherra komi fyrir hv. velferðarnefnd og útskýri það af hverju hann einn skilur frumvarpið öðruvísi en allir aðrir sérfræðingar sem um málið hafa tjáð sig. Það að stefna að því að taka út þetta mál í fyrramálið án þess að fá þessi gögn, án þess að fá þá gesti sem minni hlutinn hefur óskað eftir, er gerræðislegt og það er ekki hægt að sætta sig við slík vinnubrögð. Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að það sé raunverulega það sem stjórnarmeirihlutinn vill hér á Alþingi. Það er ófaglegt, það er ómálefnalegt að koma ekki til móts við þessar málefnalegu kröfur (Forseti hringir.) sem fram hafa komið frá minni hlutanum. Ég trúi því ekki að meiri hlutinn ætli sér að gera þetta.