157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

spurningar til ráðuneytis og frumvarp um almannatryggingar.

[19:29]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S):

Frú forseti. Það var mér mikill heiður að taka sæti hér á Alþingi Íslendinga og taka þátt í því að semja leikreglur fyrir samfélagið okkar. En það hryggir mig hreinlega að fylgjast með því hvernig valdið hagar sér hér. Það er dapurlegt að sjá hvað gervimennskan hér inni er algjör, hún er bara algjör. Það að þessi meiri hluti geti ekki borið virðingu fyrir þeim leikreglum sem við höfum sett okkur og hvíla í þingskapalögum, að niðurstaða funda morgundagsins sé ákveðin — gervimennskan hér er algjör. Ég held að það sé hollt að minna á það fyrir fólkið sem mannar þennan meiri hluta að hér eiga sér stað reglulega valdaskipti og það er affarasælast að fólki sé minnugt þess þegar það loksins hefur meiri hluta hér inni. Það hryggir mig að fylgjast með þessu.