157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

spurningar til ráðuneytis og frumvarp um almannatryggingar.

[19:32]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég treysti hv. velferðarnefnd fullkomlega til að vinna málið áfram. Ég hef svo sem ekki stjórn á dagskrá nefndarinnar frekar en á þinginu. Ég hef fylgst með umræðum, ekki bara síðustu daga heldur frá því að ég tók sæti á þingi og það er áhugavert, sérstaklega þegar kemur að Sjálfstæðisflokknum og eftir atvikum Miðflokknum, að þegar kemur að skjaldborg um ríkustu fjölskyldur landsins, (SÁA: Í guðanna bænum.) stórútgerðina, kvótakerfið og síðan þegar kemur að kjarabaráttu eða sanngjörnum leiðréttingum fyrir fátækasta fólkið í landinu, öryrkja og eldri borgara, þá er alveg kýrskýrt hvar þið standið. (Gripið fram í: Ömurlegt. )Ömurlegt, segir hv. þingmaður. Horfum bara á það, það þarf ekki annað en að spóla á Íslandsmet í málþófi — og staðan hér þegar á að fara að vinda ofan af kvótasetningu á grásleppu og síðan þegar verja á kjör þeirra verst settu, eldri borgara og öryrkja. Þið talið ykkar máli.