157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

spurningar til ráðuneytis og frumvarp um almannatryggingar.

[19:34]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Það er manni ekkert meira á móti skapi en að þurfa að koma hér ítrekað upp og benda á hversu mikið ábyrgðarleysi, hversu mikið virðingarleysi og yfirgangur er hér af hv. meirihlutaþingmönnum. Svo tekur algerlega steininn úr þegar hæstv. ráðherrar, hvort sem það er hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra eða hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, koma hér upp og geta aldrei staðið efnislega fyrir máli sínu, koma bara með einhverjar dylgjur og stóryrði og yfirgang, það er það eina sem þeir hafa fram að færa, geta ekki komið með ein rök máli sínu til stuðnings. Þeim hefur bara ekki tekist það í þessari pontu enn þá að koma með ein rök fyrir máli sínu. Þau eru alltaf með einhvern yfirgang og dónaskap og yfirlæti í þessari pontu. Því er það ábyrgðarhluti hjá okkur að koma hér upp og benda á þetta þó að manni sé það á móti skapi.