spurningar til ráðuneytis og frumvarp um almannatryggingar.
Frú forseti. Ég ætla að reyna að bregðast ekki við orðum hæstv. ráðherra hérna áðan því að mér fannst þau dónaleg og ómálefnaleg og eiga ekkert erindi inn í þessa umræðu.
Virðulegur forseti. Ég óska eftir því að hæstv. forseti hlutist til um það hvernig málum verður háttað í hv. velferðarnefnd á morgun. Mér finnst það mikill dónaskapur við þingræðið, við lýðræðið, að hér sé sent út fundarboð um að stefnt sé að því að taka út þetta mál þegar hér í þessari pontu hefur skýrt verið beðið um að það verði kallaðir til ákveðnir gestir og frekari gögn verði fengin í málinu. Það að meiri hluti velferðarnefndar leyfi sér að senda svo bara út eitthvert nefndarálit núna og segist stefna að afgreiðslu er dónaskapur við þá sem hér hafa staðið og fjallað um þetta mál með málefnalegum hætti. Ég tala nú ekki um þann dónaskap sem hæstv. ráðherrar og aðrir í þessum meiri hluta (Gripið fram í.) hafa sýnt öllum þeim sérfræðingum sem tjáð sig hafa um málið. Allir þeir hagfræðingar, hvort sem það er hjá ASÍ, SA eða hagfræðingur (Forseti hringir.) upp í háskóla — nei, þeir bera hag öryrkja í þessu landi ekki fyrir brjósti.
Virðulegur forseti. Svona málflutningur er algerlega óboðlegur.