157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

spurningar til ráðuneytis og frumvarp um almannatryggingar.

[19:37]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Maður getur ekki orða bundist yfir framkomu hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra hér áðan og þessari orðræðu. Þetta er eins og ótíndur götustrákur sé hér á ferð en ekki ráðherra í ríkisstjórn Íslands, hvernig málfarið var, hvernig skilaboðin voru um að menn standi vörð um hina ríku. Þetta er auðvitað algerlega galinn og óboðlegur málflutningur. Það vill svo til að í þessu máli eru fyrrverandi félagar hans úr Alþýðusambandi Íslands og úr verkalýðshreyfingunni sammála okkur, (Gripið fram í.)auk Samtaka atvinnulífsins og fjölmargra aðila. Síðast í morgun tók seðlabankastjóri meiri hlutann á beinið og gerði þeim grein fyrir ábyrgð hans í þessu máli. En það eru bara allir asnar og vitleysingar og hagsmunagæsluaðilar fyrir einhverja ríka í landinu að mati hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra. Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega hér inn á þing? Jú, úr verkalýðshreyfingunni, hann kom úr verkalýðshreyfingunni. (Gripið fram í.) Hann talar með þessum hætti (Forseti hringir.) til fólks í stærstu stjórnmálaflokkum landsins. Þetta er auðvitað algjörlega óboðlegt og forseti á náttúrlega (Forseti hringir.) að ávíta ráðherra og þingmenn sem tala með þessum hætti til annarra hér í salnum.

(Forseti (HildS): Forseti beinir því til þingmanna að gæta orða sinna.)