Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég rakst í gær á frétt sem birtist af hugmyndum sem dómsmálaráðherra eða ríkisstjórnin hefur rætt, hugmyndum sem er ágætt að flagga hér við þetta tilefni og fagna ef raunverulegur vilji er á bak við þessar hugmyndir. Það eru sem sagt hugmyndir um möguleika á að senda brotlega útlendinga til svokallaðs þriðja lands ef aðstæður í heimalandi þeirra teljast ekki öruggar. Þetta er mál sem hefur verið mjög lengi í umræðunni og margir hafa spurt sig þegar við blasa yfirfull fangelsi hér á landi og menn eru að leita leiða til að tappa af fangelsunum, sem eru skipuð að miklum meiri hluta til borgurum erlendra ríkja, hvernig hægt væri að mæta því. Þess vegna vakti það forvitni en ánægju af minni hálfu að sjá að ríkisstjórnin virðist þó vera að velta þessum möguleika fyrir sér sem mörg ríki í kringum okkur hafa verið að velta fyrir sér núna um áraraðir.
Hins vegar er um leið mikilvægt að vekja athygli á því að einhver ríki virðast hafa verið gerð brottræk með þær ákvarðanir um að vista útlendinga erlendis. Ég minni sérstaklega á dóm sem hefur í rauninni hleypt mannréttindasáttmála Evrópu í uppnám, þegar úrskurður dómara við Mannréttindadómstól Evrópu fyrir nokkrum misserum kvað á um það að hælisleitandi, sem hafði verið hafnað á öllum dómstigum í Bretlandi um hæli, af áfrýjunardómstólum og Hæstarétti Bretlands, og átti þar af leiðandi að fara að vísa honum til Rúanda sem Bretland hafði gert samning við, sú ákvörðun var stöðvuð á flugvellinum af hálfu Mannréttindadómstólsins. Ég vildi, virðulegur forseti, vekja athygli á þessu. Það er margt í mörgu en ég vil hvetja íslensk stjórnvöld til þess að taka ákveðin skref í að skoða þennan möguleika mjög vandlega vegna þess að ég held að hann gæti skipt sköpum til framtíðar í fangelsismálum og í viðskiptum útlendinga sem hingað koma í ólögmætri dvöl og dvelja hér í ólögmætri dvöl.