157. löggjafarþing — 72. fundur,  18. feb. 2026.

Störf þingsins.

[15:08]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf):

Virðulegur forseti. Sá sem hér stendur sótti í síðustu viku fundi á vegum Alþjóðaþingmannasambandsins í Bandaríkjunum. Fyrri hluti ferðarinnar var sameiginlegur með norrænum þingmönnum þar sem fundað var með þingmönnum Texas og fjallað þar um stöðu efnahagsmála og ýmsar áskoranir sem þau standa frammi fyrir og var það mjög áhugavert.

Seinni hluti ferðarinnar var í aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York. Eitt af fjölmörgu sem þar var á dagskrá vakti einnig mikla athygli. Það er nýbirt skýrsla sem var verið að gefa út og fjallar um ofbeldi gagnvart þingmönnum. Skýrslan er aðgengileg á vef Alþjóðaþingmannasambandsins og ég hvet þingmenn til að kynna sér hana. 77% þeirra sem svöruðu könnuninni á vegum skýrsluhafa sögðust hafa orðið fyrir ofbeldi, ýmist á netinu eða í raunheimum. 64% karla og 86% kvenna sögðust upplifa að ofbeldi hefði aukist á nýliðnum árum. Það er áhugavert en líka alvarlegt að 44% svarenda töldu ofbeldi hluta af því að vera í stjórnmálum. Þeim sem segjast hafa orðið fyrir beinu líkamlegu ofbeldi hefur líka fjölgað á milli ára. Þó nokkrir segjast hafa breytt hegðun sinni verulega; fækkað viðtölum, tjáð sig minna og jafnvel forðast að taka þátt í umræðum í þingsal af ótta við afleiðingar.

Við hér á Íslandi erum ekki undanskilin þessu. Á síðustu árum hafa ráðherrar þurft að búa við það að þurfa öryggisgæslu og nýlega var núverandi þingmanni hótað svo alvarlega að setja þurfti lögreglugæslu um heimili hans. Þetta er ólíðandi. Við getum tekist á og stundum hart en að þingmenn búi við hótanir á ekki að vera hluti af því að vera í stjórnmálum. Með vandaðri orðræðu hér á Alþingi getum við verið fyrirmyndir í þessum málum.