157. löggjafarþing — 72. fundur,  18. feb. 2026.

Störf þingsins.

[15:10]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf):

Forseti. Þingheimur fagnaði því hér í gær að miklir og góðir áfangar í orkuöflun eru að baki. Skrokkalda og Holtavirkjun eru komin í nýtingarflokk. Það ber að fagna þessu. Græn orka er mikilvæg. Raforkuöryggi er gríðarlega mikilvægt fyrir ekki bara heimilin í landinu heldur fyrirtæki hringinn í kringum landið. Það var athyglisvert að sjá að þingmenn voru á grænum takka þvert á flokka í þessu málefni í gær. En við þurfum líka að staldra við hinn þátt málsins sem er umhverfisvernd. Íslendingar státa líklega af Evrópumeti í víðernum náttúruperla og fyrir þann mann sem hér stendur og hefur staðið uppi á fjöllum eins og Herðubreið og Snæfelli og horft yfir nánast allt land sitt er það áminning, ekki bara fyrir hann heldur heila þjóð, um að víðernin eru gríðarleg verðmæti. Það að standa uppi á Herðubreið í 1.682 metra hæð og sjá yfir á Tröllakirkju og Holtavörðuheiði án þess að nokkuð skyggi á augun eru forréttindi sem við Íslendingar búum við og þeir útlendingar sem sækja landið. Þess vegna þurfum við á hverjum tíma, um leið og við fögnum áföngum til að fá meiri græna orku, að gæta þess að við göngum ekki á þau víðerni sem eru perlur okkar og forréttindi í landi sem æ fleiri vilja njóta og æ fleiri eiga að njóta. En þá vil ég líka geta annars. Þær virkjanir sem hafa þó verið gerðar hér uppi á öræfum hafa, sakir ábyrgðar Landsvirkjunar, veitt okkur aðgang að þessum náttúruperlum, veitt okkur góða vegi að þessum náttúruperlum, svo að við þurfum fyrir vikið ekki að misnota svæðið þar í kringum veginn. (Forseti hringir.) Þetta verðum við allt að hafa í huga en gætum að því að við týnum ekki niður náttúruperlum okkar á sama tíma og við öflum grænnar orku.