Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ábyrgð Alþingis gagnvart samfélögum um land allt er mikil og hún birtist skýrt þegar kemur að ofanflóðum. Fyrir þau sem búa á Austurlandi, Norðurlandi, Vestfjörðum og víðar á landsbyggðinni eru snjóflóð og skriðuhætta ekki bara fræðilegt hugtak heldur raunveruleg ógn. Við höfum séð það víða að afleiðingarnar koma hvort sem við erum tilbúin eða ekki. Við verðum að tryggja að markaðar tekjur af ofanflóðagjaldi skili sér að fullu í verkefni á sviði ofanflóðavarna og að framkvæmdum verði hraðað eftir fremsta megni. Að sama skapi er mikilvægt að hækka hlutdeild ofanflóðasjóðs í viðhaldi varnarvirkja og tryggja stöðugt og fyrirsjáanlegt fjármagn. Viðhald er ekki aukaatriði heldur nauðsynlegt til að tryggja öryggi til langs tíma. Við verðum líka að horfast í augu við breytta tíma. Loftslagsbreytingar hafa áhrif á úrkomumynstur og veðuröfgar. Þær auka líkur á skriðuföllum og ófyrirsjáanlegum atburðum. Því þarf að líta á ofanflóðavarnir ekki aðeins sem viðbragð við fortíðinni heldur sem nauðsynlega fjárfestingu í framtíðinni. Ofanflóðavarnir eru hluti af loftslagsaðlögun. Þær eru samfélagsleg forvörn og þær eru réttlætismál. Sterk landsbyggð krefst þess að ríkið axli ábyrgð þegar náttúruvá steðjar að. Öryggi fólks á ekki að ráðast af stærð sveitarfélags eða fjárhagslegu bolmagni þess. Við eigum ekki aðeins að bregðast við eftir á heldur að undirbúa landið fyrir það sem koma skal. Það er okkar hér á Alþingi að tryggja að sú ábyrgð sé raunveruleg í lögum, í fjármögnun og í framkvæmd.