157. löggjafarþing — 72. fundur,  18. feb. 2026.

Störf þingsins.

[15:15]
Horfa

Karólína Helga Símonardóttir (V):

Virðulegur forseti. Við búum í landi þar sem tjáningarfrelsi er sterkt. Stjórnarskráin tryggir okkur rétt til að láta í ljós hugsanir okkar en hún segir líka annað, að við berum ábyrgð á orðum okkar. Það þýðir að tjáningarfrelsi er ekki bara réttur, það er líka ábyrgð. Á samfélagsmiðlum sjáum við daglega fullorðið fólk skrifa orð sem það myndi aldrei segja upphátt augliti til auglitis; háð, niðurlæging, reiði og jafnvel hatur sett fram eins og það skipti engu máli en það skiptir máli vegna þess að sum orð eru líka ofbeldi.

Mér verður oft orða vant þegar ég les athugasemdir á samfélagsmiðlum við færslur eða fréttir. Oft velti ég fyrir mér hvort fólk átti sig á því hver það er sem les þessar athugasemdir því að á bak við skjáinn sitja ekki bara aðrir fullorðnir, þar sitja líka börn. Börn lesa athugasemdir okkar fullorðinna. Þau læra hvernig á að tala um annað fólk af því hvernig við tölum um annað fólk. Þau læra hvað er í lagi af okkur fullorðna fólkinu. Ef við sem fullorðin leyfum okkur að kalla fólk heimskt, ljótt, ógeðslegt eða verra, hvað erum við þá að kenna næstu kynslóð? Við þurfum ekki að vera sammála. Við höfum leyfi til þess að vera með skoðanir og tjá okkur. Sterkar skoðanir eru hluti af lýðræðinu okkar en virðing er líka hluti af lýðræðinu okkar. Við getum gagnrýnt hugmyndir án þess að ráðast á manneskjur. Við getum verið ákveðin án þess að vera meiðandi og við getum munað að hvert orð sem við skrifum er fyrirmynd, hvort sem við viljum það eða ekki. Tjáningarfrelsið gefur okkur rödd, lögin minna okkur á ábyrgð. Siðferðislegur þroski segir okkur hvernig við eigum að nota þetta frelsi. Við erum ekki bara frjáls til þess að tala, við erum nógu þroskuð til að tala vel.