Störf þingsins.
Frú forseti. Nýlega tilkynnti hæstv. utanríkisráðherra um stuðning Íslands við Úkraínu um 1 milljarð kr. í tengslum við PURL-verkefni á vegum Atlantshafsbandalagsins um kaup á varnartengdum búnaði. Þá mun Ísland verja 300 millj. kr. til samhæfingar herstjórnar NATO fyrir Úkraínu. Það gerist stundum þegar fréttir af stuðningi Íslands við Úkraínu eru fluttar að sumum finnst við ekki eiga að styrkja Úkraínumenn til vopnakaupa heldur eigi stuðningur okkar að vera í öðru formi en það. Þetta tel ég almennt vera ranga nálgun, einkum þó hvað varðar stuðning við Úkraínu. Það er augljóst í mínum huga að Úkraína heyr nú stríð sem í raun er varnarbarátta fyrir því að fullveldi þjóðar sé virt svo og alþjóðalög. Þetta eru, frú forseti, atriði sem Íslendingar reiða sig á og er grundvallaratriði sem við treystum á og byggjum í raun okkar tilverurétt á, herlaus þjóð sem við erum. Það jaðrar við einhvers konar tvískinnung að ætla að styrkja Úkraínu en samt ekki með stuðningi sem fólk þar í landi óskar eftir heldur með einhverjum þeim hætti sem okkur líður betur með. Hvort sem okkur líkar betur eða verr þá þurfa þeir sem berjast fyrir lífi sínu, fullveldi og sjálfsákvörðunarrétti þegar á þá er ráðist, að gera það með vopnum. Við styðjum Úkraínumenn sannarlega með öðrum hætti en til vopnakaupa, t.d. með stuðningi við aðhlynningu særðra og sprengjueyðingu. Sú staðreynd að Úkraína hefur haft í fullu tré við Rússa eftir ólöglega innrás þeirra í landið byggir ekki síst á þeim hernaðarlega stuðningi sem Úkraínumenn hafa fengið frá Evrópuríkjum og Bandaríkjunum. Svo því sé til haga haldið þá erum við, þrátt fyrir góðan stuðning við Úkraínu, heldur eftirbátar annarra Norðurlandaþjóða.
Frú forseti. Ég ítreka að Úkraína er að berjast fyrir því að viðhalda fullveldi sínu gegn ólöglegri innrás frá Rússlandi. Öryggi NATO-ríkja í Evrópu, Íslands þar með talið, myndi versna verulega ef Úkraína félli öll í hendur Rússlandshers. Þegar talað er fyrir því að Úkraína gefist upp við svo búið er ekki talað fyrir okkar eigin varnarhagsmunum, hvorki til skemmri eða lengri tíma.