Störf þingsins.
Forseti. Á eftir verður hæstv. mennta- og barnamálaráðherra til svara vegna munnlegrar fyrirspurnar minnar um menntamál og vil ég hvetja allan þingheim til að mæta og taka þátt í umræðunni og sýna að börn og ungmenni eru ekki afgangsstærð hér í þinginu.
Hér er um að ræða málaflokk sem stendur illa. Við getum gert miklu betur hvað námsárangur, líðan og kostnað varðar. Þó að meðaltalstölfræðin segi okkur að 40% nemenda séu ekki með grunnfærni í lesskilningi eftir tíu ára skyldunám og að einungis 3% nemenda séu í efstu hæfniþrepum PISA er staðan ekki þannig í öllum skólum landsins. Til eru skólar sem hafa fengið mjög góðar niðurstöður, reyndar svo góðar að ef allir skólar á landinu kæmu út eins og þeir skólar værum við einna hæst innan OECD-ríkjanna og hingað myndu streyma þúsundir menntaferðamanna.
Í sama skóla er mikil umframeftirspurn nemenda eftir því að komast í skólann og þá sérstaklega frá því sveitarfélagi sem rekur skólana. Það er vegna ofbeldishegðunar, eineltis, skólaforðunar og geðræns vanda. Þannig að 15% nemenda í skólanum eru þess eðlis, það er 115% aðsókn í skólann. En góður skóli og menning framleiðir ekki einungis góðan námsárangur. Einelti í skólanum er fjórum til fimm sinnum lægra en meðaltal sveitarfélagsins árum saman, starfsmannavelta lítil og veikindi starfsmanna lítil og fátíð miðað við marga aðra skóla. Ánægja foreldra var nærri 100% árum saman og skólinn var með ódýrustu skólum landsins árum saman, á nemanda. Það er ekki ljóður að skara fram úr í menntun þó að stundum virðist það vera þannig að menn megi ekki skara fram úr, hvort sem það eru nemendur eða skólar. Það þarf ekki alltaf að sækja vatnið yfir lækinn.