157. löggjafarþing — 72. fundur,  18. feb. 2026.

Störf þingsins.

[15:28]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Vegagerðin heimsótti fjárlaganefnd í morgun og við áttum góða umræðu um margt sem hefur farið fram þar undanfarin ár. Nú er mál í samráðsgáttinni sem fjallar um innviðafélagið sem er ætlað að leysa, sýnist mér, flest vandamál í samgöngumálum á Íslandi á þessu kjörtímabili. Það er áhugavert að lesa það og ég hvet hv. þingmenn til að lesa t.d. umsagnir Vegagerðarinnar og Landssamtaka íslenskra lífeyrissjóða við málið og hvernig eigi að standa að því. Það er áhugaverð lesning. Það er áhugavert og hefur komið fram á fundum fjárlaganefndar að undanförnu þegar við ræðum stofnun innviðafélags — við fengum Betri samgöngur í heimsókn til fjárlaganefndar á mánudaginn og Vegagerðina í dag til að ræða þessi mál sem snúa að stærstu fjárfestingum í innviðum, í samgöngum á Íslandi sem er verið að fara í og eru hafnar og verður farið í á næstu árum, jafnvel næstu 10–15 árum. Við höfum rætt aðkomu þingsins og fjárlaganefndar að þessum stóru málum, fjárhagslega dýru málum. Við þurfum að þétta töluvert tökin hér á vettvangi þingsins, fjárlaganefndar og þeirra nefnda sem koma að þessum málum, að fylgjast með og passa að eftirlitshlutverk þingsins sé virt sem snýr að þessum málum. Ég vek sérstaka athygli á því sem Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, tjáir sig um í Morgunblaðinu fyrir viku sem snýr að þessu og þeim áhyggjum sem þar eru uppi.

Ég legg áherslu á það hér að lokum, frú forseti, að þegar málið kemur hér til umræðu verði því vísað til hv. fjárlaganefndar sem fer með umfjöllun um fjárhagsleg málefni ríkisins hér í þinginu.