Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Fyrir einum og hálfum áratug voru samþykkt hér lög um opinber fjármál eftir mikinn undirbúning og var það mikil bót vegna þess að þá fóru menn að vinna með skipulegri hætti að opinberum fjármálum. Hugsunin var sú að taka ekki bara það sem sneri að ríkinu heldur sömuleiðis sveitarfélögunum, líta til langs tíma og sýna aukna festu í opinberum fjármálum. Því miður fór ríkisstjórnin þá leið, fyrst ríkisstjórna, að brjóta lögin um opinber fjármál og vinnulag hæstv. ríkisstjórnar hefur fært opinber fjármál áratugi aftur í tímann. Það er slæmt en ekki ætla ég að dvelja við það hér heldur ætla ég að hvetja til þess, og beini þessum orðum bæði til forseta sem og til hæstv. ríkisstjórnar, að við ræðum risamál sem snertir ríkissjóð og reyndar aðra sjóði líka, upphæðir sem nema hundruðum milljarða, risamál sem hefur áhrif á alla Íslendinga en þó sérstaklega þá sem búa hér á höfuðborgarsvæðinu. Hér er ég að vísa til samgöngusáttmálans og Sundabrautarinnar. Það virðist sem svo að þessir hlutir séu komnir á ákveðna sjálfstýringu. Þetta eru hundruð milljarða, þetta eru langstærstu framkvæmdir í sögu Íslands þegar kemur að samgöngumannvirkjum. Við erum með Betri samgöngur sem er fyrirbæri sem núna kostar okkur á ári, bara í rekstur, 427 milljónir. Nú getum við haft allar skoðanir á þessu en eitt er öruggt: Það er ekki boðlegt og hvorki í anda laga um opinber fjármál né annarra þeirra reglna sem við vinnum eftir, að þetta fari eftirlitslaust í gegn án umræðu hér á hinu háa Alþingi.