157. löggjafarþing — 72. fundur,  18. feb. 2026.

Störf þingsins.

[15:35]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Spænsk stjórnvöld boðuðu á dögunum að allt að hálfri milljón, jafnvel fleiri hundruð þúsunda ólöglegra innflytjenda, yrði veitt atvinnu- og dvalarleyfi með mjög vægum skilyrðum um að menn hefðu aðeins dvalið þarna í örfáa mánuði eða sótt áður um hæli. Menn geta auðvitað haft skoðun á þessari ákvörðun Spánverja, að hún sé vafasamt skref í ljósi þess að það er erfitt að afla upplýsinga um svona mikið af fólki og kannski óreiðukennd nálgun að hluta til, en á endanum er það bara þeirra réttur að ákveða þetta lýðræðislega. En ég tek fram að það má hafa í huga að Íslendingar og Spánverjar deila auðvitað ytri landamærum í gegnum Schengen-samstarfið og þeir sem fá dvalarleyfi á Spáni geta ferðast um Schengen-svæðið í ákveðinn tíma, frjálst, og eftir atvikum reynt fyrir sér í umsóknum hjá öðrum ríkjum. Það breytir stöðunni aðeins ef við erum að horfa á málið því að rétt eins og við erum að uppfylla okkar skuldbindingar gagnvart Schengen, t.d. með hælismáli hér á dögunum um afturköllun verndar, með stofnun fyrirhugaðrar brottfararstöðvar, þá verða önnur ríki að sjálfsögðu að huga að sinni ábyrgð. Þjóðarflokkurinn á Spáni, PP, sem er í stjórnarandstöðu gerir miklar athugasemdir við þetta hjá sósíalistastjórninni og talar um að með þessu sé verið að grafa undan evrópskum samningum um sameiginlega innflytjendastefnu, verið sé að næra alþjóðlega glæpastarfsemi og opna öryggisglufu í Schengen. Magnus Brunner, sem er Austurríkismaður og framkvæmdastjóri innanríkis- og fólksflutningamála hjá Evrópusambandinu, beinir því til Spánverja að gæta að því að svona ákvörðun hafi ekki áhrif á önnur ríki. Þetta er sannarlega umhugsunarefni fyrir okkur Íslendinga því að sama hvað við gerum hér til þess að ná stjórn á okkar innri landamærum þá nær það kannski aðeins ákveðið langt ef þau ríki sem við deilum ytri landamærum með huga ekki að stjórninni á sínum landamærum. Þess vegna hef ég beint fyrirspurn til hæstv. dómsmálaráðherra til að óska eftir upplýsingum um nálgun íslenskra stjórnvalda gagnvart ákvörðunum af þessum toga og hvort svona nokkuð kalli ekki á að við Íslendingar notum okkar rödd (Forseti hringir.) á viðeigandi vettvangi til að koma hvatningu um ábyrga stefnu á framfæri. Það væri líklega rétta nálgunin í þessu.