stöðugleikaregla.
Forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrirspyrjanda, hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur, fyrir spurningarnar tvær, um þessa mikilvægu reglu, stöðugleikaregluna, sem Alþingi samþykkti í júlí í fyrra. Stutta svarið við spurningu hv. fyrirspyrjanda er einfaldlega nei. Hlutverk stöðugleikareglunnar er að tryggja jafnvægi milli ráðstafana á tekju- og gjaldahlið ríkissjóðs. Henni er með öðrum orðum ætlað að tryggja að ekki séu teknar ákvarðanir um aukin útgjöld ríkissjóðs án þess að þau séu fjármögnuð. Stöðugleikinn sem reglan leiðir af sér er mikilvægur fyrir sjálfbærni opinberra fjármála til lengri tíma litið og með því hagkerfisins alls. Það er ekki eðlisbreyting frá fyrra fyrirkomulagi enda viðvarandi verkefni opinberra fjármála að tryggja þetta jafnvægi.
Forseti. Stöðugleikareglan þjónar nú þegar tilgangi sínum. Raunvöxtur útgjalda verður þannig ekki umfram hámark sem reglan setur, þ.e. 2% á milli ára, þegar tekið hefur verið tillit til undanskilinna liða og breytinga á skattkerfinu. Það er í samræmi við samþykkt lög og til þess fallið að viðhalda sjálfbærni opinberra fjármála. Staða ríkisfjármála á þessu ári er í samræmi við gildandi fjármálaáætlun sem samþykkt var í júlí síðastliðnum. Áætlanir gera ráð fyrir að afkoma ríkissjóðs batni milli ára og markmiðið um hallalaus fjárlög árið 2027 er innan seilingar. Markmið opinberra fjármála í núverandi umhverfi er að búa þannig í haginn að skuldahlutfall ríkissjóðs fari lækkandi og er bætt afkoma ríkissjóðs á komandi misserum meginforsenda þess að svo megi verða. Með því verður ríkissjóður betur í stakk búinn til að mæta óvæntum áföllum framtíðar. Það er stóra verkefnið.
Forseti. Varðandi síðari spurningu hv. þingmanns er mér ekki alveg ljóst hvað hv. þingmaður á við með annmörkum sem hafa litið dagsins ljós og þaðan af síður að eitthvert sammæli sé um slíka annmarka. Stöðugleikareglan hefur gefist vel og þjónar tilgangi sínum. Ekki eru því fyrirhugaðar breytingar á henni á næstunni. Það er þó ekki óeðlilegt að forsendur stöðugleikareglunnar verði endurskoðaðar í framtíðinni í ljósi fenginnar reynslu, eins og raunar er kveðið á um í lögunum sem um hana gilda. Megináherslan verður alltaf sú að stöðugleikareglan þjóni því markmiði að tryggja sjálfbært jafnvægi milli tekju- og gjaldakerfa ríkisins til lengri tíma litið.