157. löggjafarþing — 72. fundur,  18. feb. 2026.

stöðugleikaregla.

291. mál
[15:44]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka þetta mál upp. Ég held hins vegar að það sé alveg komið í ljós að þessi regla var ekki sett vegna þess að menn vildu koma hér á stöðugleika heldur var hún sett vegna þess að menn vildu að þeir litu vel út þegar verið væri að ræða opinber fjármál. Þetta er í fyrsta lagi ekki stöðugleikaregla, þetta er útgjaldaregla. Hún er veik og hefur ekki haldið neitt aftur af útgjöldum ríkisins, því miður. Og reyndar er það þannig að við vitum að forsendurnar standast ekki þegar kemur að fjárlögunum, t.d. varðandi tryggingagjaldið, en fleira mætti nefna.

Það er segin saga að það er sama hvaða reglu þú setur, þetta veltur samt á því hversu ábyrg stjórnvöldin eru og við erum ekki með ábyrga ríkisstjórn þegar kemur að fjármálum hins opinbera. Því miður fór ríkisstjórnin þá leið, eins og ég nefndi hér áðan, að brjóta lög um opinber fjármál, eins og fjármálaráð benti á. Það var eitt af þeirra fyrstu verkum. Breytingar á lögum um opinber fjármál voru unnar og lögin voru sett í víðtæku samráði með góðum undirbúningi. Í þessu tilfelli var þessi stöðugleikaregla sett, (Forseti hringir.) sem er rétt að hefur ekki reynst vel, og sömuleiðis var skuldareglan veikt. Það er vegna þess að ríkisstjórnin er eins og hún er en ekki út af því að það (Forseti hringir.) sé eitthvað annað í gangi.