157. löggjafarþing — 72. fundur,  18. feb. 2026.

stöðugleikaregla.

291. mál
[15:47]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir að taka þetta mál hér upp. Það er auðvitað engin sjálfbærni fólgin í því gagnvart ríkisfjármálunum að blóðmjólka skattstofna. Það sem blasir við eftir fyrsta árið eða hluta úr ári af þessari stöðugleikareglu er að reglan virkar sem eins konar tjakkur, tjakkur á skattahækkanir. Það er þannig að heimili landsins þurfa að sníða sér stakk eftir vexti en ríkissjóður sníður sér nú skatt eftir vexti. Það þýðir það að skatturinn er bara hækkaður eftir því sem útgjaldasýkin herjar meira á stjórnvöld hverju sinni. Þetta er auðvitað ekki til bóta, hvorki fyrir stöðugleika í ríkisfjármálum, sjálfbærni þeirra, stöðu heimila og fyrirtækja né í nokkru öðru samhengi. Þetta eykur verðbólguþrýsting og veikir verkfæri Seðlabankans. Þegar ég heyrði hæstv. fjármálaráðherra lýsa því hér áðan að engir annmarkar hefðu komið fram á notkun þessarar reglu varð ég mjög svekktur yfir því að ég hefði bara eina mínútu til ráðstöfunar af því að af nógu er að taka í þeim efnum, hvað það varðar að aðgerðir ríkisstjórnarinnar undanfarið hafi rekið hornin í stöðugleikaregluna.