157. löggjafarþing — 72. fundur,  18. feb. 2026.

stöðugleikaregla.

291. mál
[15:52]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að koma og vekja máls á þessari umræðu hér. Stöðugleikareglan er í rauninni bara regla um það að þegar stjórnmálamennirnir, hæstv. ríkisstjórn, vilja hækka útgjöldin þurfa þeir líka að hækka skattana á fólkið í leiðinni. Stöðugleikareglan segir ekkert til um það hvernig við ætlum að auka verðmætasköpun í landinu, hvernig við ætlum að auka framleiðni, hvernig við ætlum að stækka kökuna til að standa undir hagkerfinu. Nei, það er bara fyrir stjórnmálamennina til að geta aukið útgjöld, en þeir þurfa þá um leið að hækka skattana og gjöldin á heimilin og fyrirtækin í landinu. Ég held að það væri ágætisregla fyrir hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. ríkisstjórn, og sérstaklega nú á þessum tíma þegar við erum með vinstri stjórn í landinu, að hafa það á bak við eyrað að aðgát skal höfð í nærveru skattstofns.