stöðugleikaregla.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. málshefjanda fyrir að taka upp þetta mikilvæga mál. Stöðugleikaregla sú sem ríkisstjórnin setti á laggirnar og hefur réttilega verið gantast með að gæti heitið skattaregla — því að eins og hv. þm. Bergþór Ólason kom inn á þá er hún ákveðinn tjakkur til að þurfa ekki að vera með hömlur á útgjöldum svo lengi sem það koma inn tekjur á móti í boði fólksins í landinu. Ég myndi vilja segja að hæstv. ríkisstjórn mætti gjarnan vera minna að skíra hluti og búa til falleg orð og auglýsingar og frekar gera hluti sem gera gagn. Til dæmis núna varðandi frumvarpið um að tengja almannabætur við launavísitölu þá hefur komið fram að þar með yrði ríkissjóður til framtíðar í rauninni ósjálfbær. Virtir hagfræðingar hafa nefnt að varðandi stöðugleikaregluna muni þurfa að lækka 2% töluna niður (Forseti hringir.) ef það frumvarp á að ná fram að ganga. Hér er að mörgu að hyggja og það að eitthvað hljómi vel er ekki endilega þannig að verið sé að gera góða hluti, frú forseti.