157. löggjafarþing — 72. fundur,  18. feb. 2026.

stöðugleikaregla.

291. mál
[15:56]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Það sem skiptir máli við rekstur ríkisins er ábyrg fjármálastjórn sem styður við öflugt atvinnulíf og heimilin í landinu. Það er það sem skiptir máli. 143 milljarða kr. aukning ríkisútgjalda gerir það ekki. Það er 9% aukning á milli ára, langt umfram verðbólgu. Og hvernig fer ríkisstjórnin að því að standast þessa stöðugleikareglu? Hvernig fer hún að því þegar svona mikil aukning ríkisútgjalda er til staðar? Með því að hækka skatta, frú forseti, með því að hækka skatta. Þessi regla er einungis orðagjálfur til heimabrúks. Hæstv. ríkisstjórn notar hana einungis til skrauts í umræðunni. Það sem skiptir máli er ábyrg fjármálastjórn. Hefta útgjöld til að lækka vexti og slá niður verðbólguna.