157. löggjafarþing — 72. fundur,  18. feb. 2026.

stöðugleikaregla.

291. mál
[15:57]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir) (M):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmönnum og hæstv. ráðherra fyrir að taka þátt í þessari umræðu. Ég verð samt að viðurkenna að það eru gríðarleg vonbrigði að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra virðist vera kominn í hliðarveruleika með öðrum hæstv. ráðherrum þessarar ríkisstjórnar. Ég trúði því raunverulega að hann kæmi hér upp og gæti viðurkennt að það mætti mögulega endurskoða regluna.

Svo langaði mig, frú forseti, í ljósi ummæla hv. þm. Ingvars Þóroddssonar, að benda á það að samstaðan — ég hefði átt að vera skýrari — var um að stöðugleikareglan yrði að veruleika. Ég leit á það þannig. Á þeim tíma var ég nýr þingmaður. Ég treysti orðum ríkisstjórnarinnar þess efnis að þau ætluðu ekki að hækka skatta. Ég treysti orðum ríkisstjórnarinnar um að þau ætluðu raunverulega að taka til í ríkisútgjöldum. Í dag myndi ég aldrei greiða atkvæði með þessari stöðugleikareglu óbreyttri, vitandi það sem við vitum í dag um hvaða áhrif hún er að hafa. Við erum ein skattpíndasta þjóð í heimi, samt hækkaði þessi ríkisstjórn skatta eins og fram hefur komið hér. Ríkisútgjöld jukust um sirka 9%. Samt erum við innan 2% stöðugleikareglunnar. Af hverju? Af því að reglan er fyrst og fremst meingölluð. Hún ýtir undir skattahækkanir. Hún ýtir undir að við séum í einhverju bókhaldsblöffi. Ég velti fyrir mér, og kannski getur hæstv. ráðherra komið inn á það í seinna svari sínu: Mun innviðafélagið verða sett upp með þeim hætti sem best er fyrir innviðafélag eða var stöðugleikareglan kannski sett upp til að geta haft innviðafélagið og fjárfestingar til hliðar og ýtt í raun og veru undir þenslu með því að hafa fjárfestingar alveg til hliðar?