157. löggjafarþing — 72. fundur,  18. feb. 2026.

hæfniviðmið.

438. mál
[16:02]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Jón Pétur Zimsen) (S):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. mennta- og barnamálaráðherra fyrir þessa mikilvægu umræðu og fyrir að vera hér í salnum með okkur. Hér er um að ræða matsferil og hvaða hæfniviðmið liggja til grundvallar í því prófi sem nú er kallað samræmt próf meðal ýmissa manna. Í lögum um matsferil segir, með leyfi forseta:

„Tilgangur skyldubundins samræmds námsmats er að veita samanburðarhæfar upplýsingar um námsárangur og fá þar með mynd af stöðu einstakra nemenda, grunnskóla, sveitarfélaga og skólakerfisins í heild.“

Það er ljóst að það er mikið undir í matsferlinum. Hér erum við að tala um samanburðarhæfar upplýsingar. En til að geta borið saman upplýsingar þá eru ákveðnar kröfur sem þurfa að vera til staðar; að prófið sé tekið við eins aðstæður á sama tíma og að óháðir aðilar fylgist með próftöku. En ekkert af þessu er uppfyllt. Matsferill er hins vegar tekinn innan fjögurra vikna glugga. Aðstæður nemenda geta verið gjörólíkar við próftöku og ekkert ytra eftirlit er. Að auki prófar matsferill einungis úr völdum hæfniviðmiðum þannig að ótal viðmið verða út undan, ótal viðmið, og réttmæti prófsins rýrist sem því nemur. Prófin verða svo gott sem eins ár eftir ár, eins og hraðlestrarprófin sem fólk þekkir.

Virðulegur forseti. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur úrskurðað um að ef próf eru ekki eins ár eftir ár þá geti foreldrar krafist þess að fá að sjá prófin, sem þýðir að prófabankinn opnast. Það er alveg ljóst að prófin, eins og lesfimiprófin, verða eins ár eftir ár og skólar munu hafa fjögurra vikna glugga til að leggja prófin fyrir. Þetta eru prófin þar sem á að bera saman nemendur, skóla, kerfi og sveitarfélög. Það skiptir skólana miklu máli að fá að vita úr hverju er prófað í matsferli. Það er talað um valin hæfniviðmið og í því felst spurning mín til ráðherra: Hvaða hæfniviðmið eru það sem verða prófuð? Við erum með ótal hæfniviðmið. Það eru einungis valin þau sem eru þarna til samanburðar. Hér er því í raun um að ræða sauð í úlfsgæru, stöðu- og framvindupróf, sem er matsferill, sem er ætlað að gegna hlutverki samræmdra prófa til að geta hakað í pólitískt hólf um að hér séu samræmd próf að bresta á. Ég vona að foreldrar, (Forseti hringir.) kennarar og nemendur átti sig á stöðunni og að ráðherra hafi einhver svör fyrir mig.