hæfniviðmið.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þátttökuna og hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Við þurfum matskerfi sem getur hjálpað okkur að styðja við nemendur, hjálpað okkur að grípa þá sem þurfa meiri stuðning, hjálpað kennurum að skilja hvernig hægt er að halda betur utan um einstaklinga en lykilspurning hvað varðar matskerfi er líka hvort matsferill ýti undir meðalmennsku eða metnað. Ég ætla að segja þetta aftur: Hvort matsferill ýti undir meðalmennsku eða metnað. Eru skilaboð til nemenda á ólíkum aldri: Þetta er nógu gott, þú ert bara á réttri leið, þú þarft ekkert að gefa í, eða erum við að reyna að búa til kerfi þar sem er gegnsætt á öllum stigum hvernig nemandi getur gert enn þá betur og blómstrað? (Forseti hringir.) Þetta er grundvallarmál því að við þurfum á öllum skólastigum, fyrir börn á öllum aldri, að hafa kerfi sem hvetur börnin okkar til að gera sitt allra besta (Forseti hringir.) og þar er líka einkunnakerfi sem hæstv. ráðherra hefur talað fyrir að ætla að breyta. Það er líka hluti af því að við höfum þetta gagnsæi og nemandinn skilji hvar hann standi.
(Forseti (KÁB): Forseti vill minna á að stutt athugasemd er ein mínúta.)