hæfniviðmið.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir að koma með þessa fyrirspurn inn í þingsal og hæstv. ráðherra fyrir að vera hér til svara. Hæstv. ráðherra nefndi í stuttu innleggi sínu áðan að markmiðið væri að sjá hvar barnið þitt stendur, eða hvar börnin okkar standa. Þetta er auðvitað lykilspurning en til þess að komast að því hvar barnið stendur hlýtur að þurfa að vera einhver samanburður. Það er ekki bara eitthvert tilfinningalegt mat kennara, barns og foreldra, það er einhver samanburður við önnur börn á sama reki, í öðrum skólum o.s.frv. Þetta var kannski megintilgangur samræmdu prófanna á sínum tíma. Svo var foreldrum nú ekki gert auðveldara fyrir að fylgjast með námsárangri og námsframvindu barna sinna þegar farið var úr tölustafakerfinu yfir í bókstafakerfið. Jafnvel kennarar hafa átt erfitt með að útskýra fyrir bæði nemendum og foreldrum nákvæmlega hvað er á bak við hvern bókstaf. Þannig að — (Forseti hringir.) nú komst ég ekki einu sinni yfir, frú forseti, að nefna hinn fjögurra vikna glugga sem er til ráðstöfunar í málinu.