hæfniviðmið.
Virðulegi forseti. Ég vil nota tækifærið og þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir að taka þetta mál upp. Ég vil sömuleiðis þakka hæstv. ráðherra, Ingu Sæland, fyrir viðbrögðin, að því leytinu til að ég held að hún sé að gera afskaplega skynsamlegan hlut með því að setjast niður og tappa af hv. þingmanni sem þekkir þessi mál mjög vel því að við vitum að það er pottur brotinn. Við eigum glæsileg ung börn, bæði drengi og stúlkur, sem eru að standa sig vel á mörgum sviðum og við þurfum í sjálfu sér ekki að kvíða framtíðinni með þetta unga fólk en þau eiga skilið besta menntakerfi í heimi. Það segir sig sjálft að við höfum ekki skapað nægilega góða umgjörð og mér hefur fundist afskaplega gott að sjá hér hv. þm. Jón Pétur Zimsen, með sinn reynslubrunn og ástríðu fyrir málaflokknum, koma hér inn (Forseti hringir.) og vera í forystu í umræðunni um þennan mikilvæga málaflokk á hv. Alþingi og ég vona að hæstv. ráðherra geri það sem hæstv. ráðherra sagði (Forseti hringir.) og að við munum sjá hér breytingar sem getur verið góð samstaða um til að gera gott skólakerfi betra.