hæfniviðmið.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir góða umræðu og hæstv. menntamálaráðherra fyrir ágæt svör. Ég leyfi mér að taka upp þráðinn þar sem hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson skildi hann eftir í sambandi við fjögurra vikna rammann sem er undir í matsferlinum svonefnda, sem hafði verið líkt við samræmd próf en hæstv. menntamálaráðherra virðist í sinni ræðu hafa tekið af allan vafa um að hér sé ekki um samræmd próf að ræða heldur sé hugsunin önnur. Ráðherra víkur þó að möguleikanum á því að hafa samræmd próf t.d. við lok náms í grunnskóla. Ég hefði áhuga á því hér rétt á eftir, ef hæstv. menntamálaráðherra fær til þess tækifæri, að varpað yrði nánara ljósi á afstöðu ráðherrans til þess að taka t.d. upp samræmd próf í 10. bekk, sem eru eiginlega samræmd, ekki inni í einhverjum fjögurra vikna glugga eða með svona matskenndum viðmiðum, eiginlega samræmd próf þar sem allir taka sama próf á sama tíma og við getum verið viss um að samanburðurinn sé réttmætur. Hugnast hæstv. ráðherra að taka þetta upp eða ekki?