157. löggjafarþing — 72. fundur,  18. feb. 2026.

hæfniviðmið.

438. mál
[16:18]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrirspyrjanda og ráðherra fyrir þessa umræðu og fyrir að gefa okkur tækifæri til að rifja upp þá umræðu sem við áttum í þessum þingsal fyrir ári síðan og þann mikla árangur þegar ríkisstjórnin náði í gegn að innleiða nýjan matsferil sem núna er verið að fara að framkvæma í öllum grunnskólum landsins. Í fyrsta sinn í fjölda ára erum við að fara að fá raunverulega stöðu nemenda í stærðfræði og lesskilningi úti um allt land. Þessar upplýsingar eru algjörar grunnupplýsingar til að geta lagt fram sókn í menntamálum: Hvar standa nemendur okkar? Svo er þetta próf lagt aftur fyrir eftir ár og eftir annað ár þannig að við sjáum líka hvernig þróun nemenda er. Þetta er lykilatriði þegar verið er að fjalla um að vilja fá fleiri afreksnemendur en ekki síður til að grípa þá sem þurfa viðbótarstuðning. Svona heildstætt próf yfir allt landið mun kortleggja þessa stöðu og veita hæstv. menntamálaráðherra þær upplýsingar sem hann þarf til að sækja fram í menntamálum, hvort sem það er til að grípa þau sem þurfa viðbótarstuðning eða þau sem geta náð upp á hæstu hæfniþrep PISA-prófsins.