157. löggjafarþing — 72. fundur,  18. feb. 2026.

hæfniviðmið.

438. mál
[16:19]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Jón Pétur Zimsen) (S):

Frú forseti. Ég vil þakka fyrir umræðuna sem hér hefur orðið um hæfniviðmið sem eru til prófs. En ég vil aðeins leiðrétta kúrsinn. Hér er talað um raunverulega stöðu nemenda og að samræmd próf séu þröngt matstæki en matsferill sé það ekki. Matsferill er einmitt úr völdum viðmiðum en samræmd próf úr öllum viðmiðum þannig að hér erum við að tala um samræmd próf sem matsferill er ekki og því miður hafa hv. þingmenn Samfylkingarinnar misskilið tækið. Það er gott að heyra hæstv. ráðherra nefna hér upphátt, sem lengi hefur þurft, að hér er ekki um samræmd próf að ræða heldur stöðu- og framvindupróf, sem eru mjög góð eins langt og þau ná. En það er hugrekki hjá ráðherra og hæstv. ráðherra er hugrakkur, ólíkt hv. þingmönnum Samfylkingarinnar sem ákváðu með opin augun að breyta engu, svo gott sem engu, þegar matsferill fór í gegnum allsherjar- og menntamálanefnd, keyrðu málið áfram. Ég heyri engan mótmæla því að prófið sé eins núna ár eftir ár eins og var hér í pontu ítrekað í kringum matsferilinn. Þetta eru vinnubrögðin. Það er í raun óþolandi að þurfa að standa hér eftir á, þegar búið er að samþykkja matsferilinn í lögum, og almenningur heldur að hér sé um samræmd próf að ræða. Hér er tæki sem er stöðu- og framvindumat, sem er fínt sem slíkt, en hér er ekki um samræmd próf að ræða eða ný samræmd próf eins og forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu segir. Hér verðum við að vera með hugtökin á hreinu. Ég treysti hæstv. ráðherra til að keyra þetta mál áfram því að ég heyri það á ráðherranum að hann er ástríðufullur og vill laga kerfið, ólíkt mörgum fyrirrennurum hans.