157. löggjafarþing — 72. fundur,  18. feb. 2026.

hæfniviðmið.

438. mál
[16:22]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hjartanlega fyrir þessa frábæru umræðu og það er svo sannarlega aldrei of oft kveðin sú vísa sem lýtur að börnunum okkar og menntun þeirra. Það er alveg rétt að það er erfitt að skilgreina kannski á milli hvað er matsferill og það hefur verið ákveðinn misskilningur þar á ferðinni. Matsferill er ekki til þess að bera barnið saman sérstaklega við önnur börn. Eins og ég sagði, þetta er ekki samræmt próf. Þetta er matsferill sem er sérstaklega sniðinn að barninu sjálfu. Hann á sérstaklega að sýna framvindu, eins og hv. þm. Jón Pétur Zimsen bendir á, framvindu og getu barnsins sjálfs, einstaklingsins sjálfs miðað við námið sem hann hefur verið að inna af hendi. Þetta er sérstakt mælitæki, verkfæri til þess að sjá hvar skórinn kreppir hjá þessum viðkomandi litla einstaklingi. Hvar getur foreldri stigið inn í, kennari? Hvernig getur kennarinn gripið inn í og gert sér grein fyrir því að Gunni litli er bara alveg í vandræðum með þennan þátt í stærðfræðinni? Hann bara er alls ekki að skora neitt nema kannski 15% í þessu matsferilsprófi sem við erum að leggja fyrir hann. Hann á í vök að verjast. Hvað getum við gert? Það verður sérstaklega að styðja við hann að þessu leyti ef hann á að geta jafnað sig í náminu. Þetta er að mínu viti, eins og ég hef fengið skilning á þessu — síðast í gær af því að ég er alltaf að leita eftir frekari þekkingu og frekari skilningi af því að það eru mörg hugtök sem fljúga hér í kringum mig sem eru mér svolítið ný en ég er tilbúin að tileinka mér með það að leiðarljósi a.m.k. að reyna að öðlast grunnfærni eða þekkingu hvað lýtur að hugtakinu. Matsferill er frábært tæki fyrir barnið sjálft til að tengja það við kennarann og foreldrana. Foreldrið getur greinilega fengið að sjá hvar Gunni litli er ekki að skora. Hvar á foreldrið sérstaklega að styðja við hann þegar hann kemur heim? Hvar er hann ekki að skora hátt? Hvernig getum við undirbúið Gunna litla undir hið frábæra samræmda próf í tíunda bekk sem hv. þm. Jón Pétur Zimsen ætlar að hjálpa mér að útfæra betur?