157. löggjafarþing — 72. fundur,  18. feb. 2026.

afburðanemendur.

440. mál
[16:52]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Virðulegur forseti. Ég vildi leggja orð í belg og þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen kærlega fyrir þessa fyrirspurn og hæstv. ráðherra, Ingu Sæland, sömuleiðis fyrir að vera hér til svara. Ég er algerlega sammála hv. þm. Jóni Pétri Zimsen um að það að jafna niður á við sé ekki eitthvað til að hreykja sér af, ef við erum að jafna niður á við. Ég deili greiningu hæstv. ráðherra á því hver vandinn er. Ég hef sjálfur ekki starfað í grunnskóla en ég kenndi í framhaldsskóla áður en ég kom hingað inn á þing og það blasir þannig við mér að áskoranirnar eru orðnar ansi margar í skólastofunni. Þær eru oft og tíðum of stórar o.s.frv. og það gefst rosalega lítill tími fyrir kennara, sem vilja leggja allt sitt af mörkum, til að aðlaga námsefni að afburðanemendum svo þeir geti hlaupið eins langt og þeir mögulega geta. Þeir mæta afgangi af því að okkur hefur einfaldlega ekki tekist að valdefla kennara nógu mikið.

Síðan vil ég sömuleiðis þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir að nefna STEM. Það liggur mér mjög nærri hjarta.(Forseti hringir.) Ég hvet hæstv. ráðherra til dáða þegar kemur að því að efla STEM-menntun á grunnskólastigi svo það skili sér síðan upp í framhaldsskólann og upp í háskólanám og síðan út í atvinnulífið.