157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

frumvarp um veiðistjórn grásleppu.

[10:31]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Stuttu áður en menn gengu til náða í gærkvöldi bárust okkur nefndarmönnum í atvinnuveganefnd svör atvinnuvegaráðuneytisins við spurningu um alvarleg álitaefni sem snúa að svokölluðu grásleppumáli. Fátt var um svör og vísaði ráðuneytið til þess að því bæri ekki lagaleg skylda til að leggja mat á þingmannafrumvörp. Ég held að það sé allt rétt með farið hjá ráðuneytinu. Í framhaldi af því óskuðum við eftir því að lagasvið Alþingis yrði fengið til að lesa málið yfir og leggja mat á þau ágreiningsmál sem snúa sérstaklega að brotum á stjórnarskrá með þessum lögum. Í morgun var gefið í skyn að málið yrði tekið út í dag án þess að orðið yrði við þeirri beiðni og sett hér inn til 3. umræðu á dagskrá þingsins. Ég leita ásjár virðulegs forseta í þessu máli. Við höfum einnig óskað eftir fundi með forseta ásamt þingflokksformönnum stjórnarandstöðuflokkanna. Ég vona að forseti verði við þeirri beiðni okkar og að hann sjái til þess að málsmeðferð í þessu máli verði sómasamleg.