frumvarp um veiðistjórn grásleppu.
Frú forseti. Ég vil taka undir orð hv. þm. Jóns Gunnarssonar. Í ljósi þess með hvaða hætti málið hefur verið unnið undanfarið, í ljósi þess samkomulags sem gert var varðandi framsetningu spurninga og umræðu þar að lútandi, sem blasir við að stjórnarandstöðuflokkar stóðu við að fullu, þá hvet ég virðulegan forseta til að verða við þessari beiðni minni hluta nefndarinnar um fund. Þó að hér verði ekki farið í smáatriðum í gegnum fund morgunsins í atvinnuveganefnd þá er býsna margt brogað í því verklagi sem nú er viðhaft. Það snýr m.a. að gestakomum, meðferð nefndar milli 2. og 3. umræðu og fleiru slíku. Ég hvet virðulegan forseta til að verða við þessari beiðni okkar fulltrúa stjórnarandstöðuflokkanna í minni hluta atvinnuveganefndar því að það verklag sem nú er viðhaft bendir til þess að júlímánuður 2025 sé kominn aftur.