157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

frumvarp um veiðistjórn grásleppu.

[10:34]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Það er rétt að taka það fram að þetta mál hefur einfaldlega verið mjög vel unnið og það hefur verið til meðferðar í þinginu í á annað ár og það hefur verið reynt að bregðast við óskum um gestakomur í nær öllum tilfellum. En auðvitað þegar koma óskir um að sækja einstakar persónur út úr stofnunum — það er eitthvað sem orkar tvímælis. Þetta mál er með þeim hætti að það snýst einfaldlega um pólitískan ágreining um málið. Vinnubrögðin eru góð og mér finnst rétt að þakka hv. þingmanni og formanni atvinnuveganefndar fyrir það starf sem hún hefur leitt í nefndinni. Það hafa verið mikil átök um þetta mál og ég tel að það hafi verið unnið vel og ég vona svo sannarlega að það verði til lykta leitt þannig að þingmenn geti greitt atkvæði um það von bráðar.