157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

áhrif tengingar bóta almannatrygginga við launavísitölu.

[10:40]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir spurninguna. Til að bregðast við þeim fullyrðingum að allir málsmetandi aðilar hafi rangt fyrir sér, vil ég benda hv. þingmanni á grein Gylfa Magnússonar hagfræðiprófessors í fréttum á Vísi í morgun þar sem hann fullyrti einmitt hið gagnstæða; það væri útilokað að tenging bóta við launavísitölu hefði teljandi áhrif á hag og stöðu ríkissjóðs. Hann færir fyrir því ágætisrök, og svipuð rök og ég hef haldið fram í viðtölum og á þessum vettvangi, að áhrif þessa frumvarps á ríkissjóð séu óveruleg.

Varðandi gagnrýni á þennan svokallaða tvöfalda lás, þá höfum við svarað því. Því hefur verið svarað og ég vísa til greinargerðarinnar sem tekur á því. Ég hef hins vegar sagt, bæði hér í ræðustól og sömuleiðis í viðtölum, að sú gagnrýni sem snýr að óskýrleika þess atriðis í frumvarpinu sjálfu — að það væri sjálfsagt að laga það og vísaði því bara á nefndina. Telji hún ástæðu til að gera lagfæringar á þessu atriði væri það auðvitað — ég tek kannski ekki beint undir þá gagnrýni en ég lít alla vega á þá gagnrýni þannig að hún sé í það minnsta ekki byggð á misskilningi á tilgangi frumvarpsins.

Varðandi aðra þætti sem hv. þingmaður bendir á, hvort ég hafi áhyggjur af því að verðlagsforsendur verði óvirkur hluti (Forseti hringir.) af þeim kjarabótum sem frumvarpið snýr að að verja, þá er margt í tölulegu og sögulegu samhengi sem bendir til þess, já.