157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

friðlýsing virkjunarkosta í rammaáætlun.

[10:57]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég velti þá fyrir mér af hverju við vorum yfirleitt að greiða atkvæði um þessa kosti akkúrat á þessum tímapunkti ef ráðherrann er í raun að segja að hann ætli að bíða með það þangað til hér eru komin fram væntanlega, og þá samþykkt, ný frumvörp sem gera ráð fyrir því að það verði hægt að friðlýsa samkvæmt náttúruverndaráætlun. Er ráðherra í rauninni að segja að hann ætli að bíða með að setja þessa kosti?

Í framhaldi af þessu langar mig að ræða atkvæðagreiðsluna og þá staðreynd að við vorum á þessum tíma í rauninni að skera niður þá kosti sem gætu komið til framkvæmda á næstu árum. Vil ég þar nefna sérstaklega, sem hér hefur líka verið nefnt áður, að orkuspá Landsnets gerir ráð fyrir að það þurfi allt að 5.000 GWst fyrir árið 2035. Nú er ljóst að þeir kostir sem ákveðið var að virkja munu ekki uppfylla nema bara brotabrot af því. Því langar mig að spyrja ráðherrann: (Forseti hringir.) Hefði ekki verið skynsamlegra að klára Urriðafoss í þessari atrennu og láta þá ráðast varðandi niðurstöður um seiðafleytu á öðru stjórnsýslustigi heldur en í rammaáætlun? (Forseti hringir.) Því að á meðan kosturinn er inni í rammaáætlun geta verið teknar ákvarðanir um að hreinlega breyta þessum kosti í það að hann verði friðaður.