157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

friðlýsing virkjunarkosta í rammaáætlun.

[10:59]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Hér var spurt hvers vegna við hefðum verið að greiða atkvæði um þessa afmörkun í fyrradag. Það er auðvitað bara gert samkvæmt þeim reglum sem nú þegar gilda. Og þá er spurt: Verður þetta friðlýst eða stendur ekki til að friðlýsa þetta? Ég geri ráð fyrir að frumvarpið um vindorkunýtingu og samspil náttúruverndarlaga og rammaáætlunarlaga verði samþykkt hér í vor. Það er það sem ég geri ráð fyrir og ég haga minni stjórnsýslu auðvitað samkvæmt því. Það tekur marga mánuði og jafnvel ár að friðlýsa. Þetta er heillangt ferli sem Náttúruverndarstofnun fer með og eins og hv. þingmaður þekkir þá hafa engir kostir verið friðlýstir með lögmætum hætti síðan rammaáætlunarlögin tóku gildi.

Hér er spurt um Urriðafossvirkjun. Eins og ég fór ágætlega yfir hér í fyrradag þá barst beiðni um það frá sveitarfélaginu, sem hýsir þennan virkjunarkost og mun þurfa að veita framkvæmdaleyfi (Forseti hringir.) og haga sínu skipulagi samkvæmt rammaáætlun, um að kosturinn yrði í biðflokki á meðan frekari rannsóknir færu fram í tengslum við mótvægisaðgerðir vegna villta laxastofnsins. Ég orðaði það kannski ágætlega í fyrradag, að mér finnst ekki góður bragur á því að troða virkjunum ofan í kokið á sveitarfélögunum gegn vilja þeirra, (Forseti hringir.) þannig að ég held að þetta hafi verið skynsamleg ákvörðun. Nú verður þá hægt að fara í að rannsaka þetta betur og Landsvirkjun fer á fullt í að undirbúa Holtavirkjun, sem þyrfti hvort eð er að vera (Forseti hringir.) þarna á undan ásamt auðvitað Hvammsvirkjun. Þar eru stór útboð fram undan og framkvæmdir að hefjast.

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hæstv. ráðherra og hv. þingmenn á að í seinni umferð í óundirbúnum fyrirspurnum er ræðutíminn ein mínúta.)