157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

fjölgun lögreglumanna.

[11:01]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Mig langar hér aðeins að eiga orðastað við hæstv. dómsmálaráðherra um stöðu lögreglunnar. Ég held að bæði ég og hæstv. ráðherra deilum áhuga á lögreglu og öflugri löggæslu um allt land sem er náttúrlega lykilþáttur í öllum innviðum og öllu viðbragði hringinn í kringum landið. Við erum hér á eftir að fara að ræða skýrslu ríkislögreglustjóra um skipulagða glæpastarfsemi. Við erum að sjá nýjar ógnir. Við erum að sjá harðari glæpi. Álag á viðbragðsaðila, m.a. lögreglu, hefur aukist gríðarlega á síðustu árum og misserum. Það leiðir mig að spurningu minni til hæstv. ráðherra sem snýr einmitt að fjölgun lögreglumanna.

Nú var það boðað á síðasta ári að fjölga ætti lögreglumönnum um 50 um allt land. Því langar mig að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra: Hvað líður þeirri fjölgun? Hver er staðan í dag og hvað eru margir af þeim 50 sem var búið að veita fjárveitingu fyrir komnir til starfa? Hefur hæstv. dómsmálaráðherra þessa tölu? Og ef hún hefur þá tölu væri áhugavert að vita hvað margir af þeim lögreglumönnum eru starfandi á höfuðborgarsvæðinu, þar sem álagið er kannski hvað mest.