fjölgun lögreglumanna.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni kærlega fyrir spurninguna og þakka honum jafnframt fyrir áhugann sem hann sýnir löggæslunni í sínum þingstörfum. Það er mjög gott að eiga bandamann í þeim efnum. Ég tek heils hugar undir varðandi alvarleikastigið sem þingmaðurinn lýsir um nýjar ógnir, um harðari glæpi og hef einsett mér að grípa þurfi til aðgerða. Ég gaf auðvitað nýlega út þessa skýrslu, Öruggara Ísland, með fyrstu stefnu stjórnvalda um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi.
Hv. þingmaður nefndi líka að það hafi verið nefnt í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar, þegar við tókum við, að við ætluðum okkur að efla lögreglu í landinu, annars vegar með því að fjölga lögreglumönnum en hins vegar með því að færa þeim betri verkfæri í sína verkfærakistu, þá með auknum lagaheimildum. Ég er með mjög stóran aðgerðapakka í smíðum í þeim efnum og við höfum þegar fjölgað lögreglumönnum. Við höfum tryggt fjármögnun, gerðum það strax, fyrir 50 stöðugildi hringinn í kringum landið. Vitaskuld var því misjafnlega dreift með tilliti til stærðar embætta en líka með tilliti til þess hvar þessi þungi er sem þingmaðurinn er að lýsa. Við settum t.d. inn tvo menn til viðbótar í sérsveit. Um helmingur þessara manna fór til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Það hefði hæglega verið hægt að rökstyðja aukinn fjölda þangað því þar eru í kringum 70% hinna alvarlegu glæpa á landinu öllu. Ég er ekki með nákvæma tölu um það hvernig embættin hafa farið í það verkefni að ráða til sín menn en get fullyrt að embættin hafa fengið til sín fjármuni til að gera það og hafa fengið upplýsingar fyrir allnokkru síðan um það hvað hvert og eitt embætti fékk til sín marga menn.