157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

Skýrsla greiningardeildar ríkislögreglustjóra um skipulagða brotastarfsemi á Íslandi.

[11:36]
Horfa

Stefán Þór Eysteinsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir að hefja þessa góðu og mikilvægu umræðu, enda er hún nauðsynleg, og þakka hæstv. ráðherra fyrir að bregðast vel við. Mig langar að nýta þetta tækifæri og ræða skýrsluna í samhengi við landamæraeftirlit og sérstaklega hlutverk tollayfirvalda um land allt. Í skýrslunni er fjallað um mikilvægi þess að sporna við skipulagðri brotastarfsemi með markvissu eftirliti og samhæfingu. Þar skipta hafnir og flutningsleiðir verulegu máli. Þar sem ég kem af Austurlandi þekki ég vel að stór hluti vöru- og farþegaflutninga fer um hafnir, ekki einungis þær stærstu heldur einnig minni hafnir víða um land. Í ljósi aukins ferðamannastraums og aukinna alþjóðlegra tengsla þarf að efla gæsluna og að sama skapi er mikilvægt að tollayfirvöld hafi yfir að ráða nútímalegum búnaði og tæknilegri getu til að sinna hlutverki sínu. Mér skilst að gegnumlýsingartæki sem nú er í notkun sé komið til ára sinna og ljóst að þróun í skipulagðri brotastarfsemi kalli á sambærilega þróun í tækjabúnaði og viðbragðsgetu. Þar vil ég nefna sérstaklega vöruinnflutning um Mjóafjarðarhöfn og Norrænu á Seyðisfirði í því samhengi.

Forseti. Ég vil því hvetja hæstv. ráðherra áfram til dáða og halda áfram að styrkja þetta mikilvæga svið og tryggja að þeir sem standa vörð um landamæri Íslands hafi þau tæki og þann stuðning sem þarf.