Skýrsla greiningardeildar ríkislögreglustjóra um skipulagða brotastarfsemi á Íslandi.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmönnum öllum fyrir góða umræðu og ekki síst málshefjanda. Ég held að lykilstefið hér sé löggæsla, tollgæsla og Útlendingastofnun. Það eru þau kerfi sem við erum einna helst að horfa á. Þingmaðurinn nefndi þekkt tilfelli um erlenda menn með tengsl við hryðjuverkastarfsemi sem hafi komið hingað til lands. Það hefur gerst hér á landi eins og annars staðar, því miður. Forsenda árangurs í þeim efnum var þá og er enn þá alþjóðleg samskipti, rannsóknir og eftirlit. Þetta er auðvitað viðvarandi ógn hjá flestum ríkjum, öllum ríkjum því miður vil ég segja. Mönnum hefur verið vísað úr landi og við höfum verkfæri til að staðsetja menn, m.a. á grundvelli lögreglulaga um afbrotavarnir í þágu öryggis ríkisins og til að koma í veg fyrir komu þessara aðila þá byggja ráðstafanir á lagaheimildum sem við eigum nokkrar. Þær byggja á upplýsingamiðaðri greiningu og þær byggja ekki síst á alþjóðasamstarfi, Europol og Eurojust. Þess vegna er t.d. frumvarp mitt núna, sem ég er með hér í þinginu, um sterkara eftirlit í gegnum Schengen-upplýsingakerfið, gríðarlega mikilvægt til þess að við séum með upplýsingar í rauntíma á landamærum og ég vonast til þess að Miðflokkurinn treysti sér til að styðja það mál, allur þingflokkurinn, því mér fannst það ekki alveg ljóst af umræðunum hérna síðast.
Að því sögðu er ég þakklát fyrir umræðuna og þakklát fyrir þann tón og takt sem ég heyri hér af hálfu þingmanna allra í þessari umræðu. Ég nefni það sem þegar hefur verið gert sem er lagasetning um farþegalista, lagasetning um endurheimt ávinnings, nýráðningar í 40 störf til lögreglu af þessum 50 sem auglýst hafa verið. Þau eru varanleg en ekki tímabundin eins og stundum hefur verið þannig að þessi fjölgun hefur komið til framkvæmda. Ég þakka fyrri stjórnvöldum fyrir það sem vel er gert og tala það ekki niður. Það er mikilvægt að við getum horft á það hvað fólk er að gera og hefur gert og talað um þau mál af ákveðinni yfirvegun. Við erum í markvissum aðgerðum hvað varðar brottvísanir. Það eru stór skref sem eru stigin hér á Íslandi. (Forseti hringir.) Við horfum framan í sama vanda og nágrannaríkin okkar og við ætlum að halda baráttunni áfram. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni kærlega fyrir að vekja máls á þessu umræðuefni hér í þingsal í dag.