fundur með forseta vegna frumvarps um veiðistjórn grásleppu.
Virðulegur forseti. Ég kom inn á það hér í morgun að við í minni hluta, stjórnarandstöðu, í atvinnuveganefnd hefðum óskað eftir fundi með forseta og formönnum þingflokka stjórnarandstöðunnar vegna þess ofbeldis sem við teljum að meiri hlutinn sé að beita í afgreiðslu svokallaðs grásleppumáls í atvinnuveganefnd. Þar er hafnað augljósum gestakomum. Þar hafa ekki fengist svör við mjög áleitnum spurningum um lögmæti málsins. Við höfum óskað eftir því að a.m.k. lagasvið Alþingis verði látið fjalla um málið. Þetta er auðvitað á ábyrgð meiri hlutans, virðulegur forseti, þó að það sé átakanlegt á fundum nefndarinnar að eingöngu fulltrúar Flokks fólksins tjái sig um málið, aðrir eru eins og þegjandi verkfæri í höndum þeirra við þetta vinnulag sem ég tel að sé nánast fordæmislaust. Ég ítreka það, (Forseti hringir.) virðulegur forseti, að við höfum óskað eftir þessum fundi. Við höfum ekki fengið svör frá forseta og ég tel alveg ótækt að taka málið áfram til atkvæðagreiðslu og á dagskrá öðruvísi en að við fáum þetta samtal við forseta þingsins.