157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

fundur með forseta vegna frumvarps um veiðistjórn grásleppu.

[13:05]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Það er ekki hægt annað en að koma hingað upp og ræða aðeins þetta mál er varðar grásleppuna og þau vinnubrögð sem hafa verið viðhöfð í því máli. Ég verð að segja, virðulegur forseti, að það er mjög sérstakt að við séum að fara, eins og meiri hlutinn virðist stefna á, að klára hér þingmannamál, sem getur haft verulegar afleiðingar í för með sér og mun að öllum líkindum gera það, og ætla að keyra það í gegnum Alþingi án þess að ráðuneytið hafi vilja til þess að svara spurningum sem hafa verið lagðar fyrir það. Það er mjög sérstök vegferð, virðulegur forseti, að ætla að fara að klára hér mál með þeim hætti. Ég skora á forseta þingsins og hæstv. ríkisstjórn að stíga aðeins skref til baka.(Forseti hringir.) Við erum nú eftir allt saman að kalla hér eftir vandaðri lagasetningu og vandaðri löggjöf. Ég hvet því þingforseta (Forseti hringir.) til að hlusta á það sem stjórnarandstaðan er að segja hér í dag og stíga eitt skref til baka og skoða þetta mál með þeim gleraugum.