157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

fundur með forseta vegna frumvarps um veiðistjórn grásleppu.

[13:12]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Við höfum ekki auðnast hér í þessum þingsal að ræða efnisatriði þessa máls. Þar er af nógu að taka. Hins vegar hefur málsmeðferðin í málinu verið þannig að það hefur hindrað eðlilega þinglega meðferð vegna þess að til að geta átt málefnalega umræðu um efnisatriði þessa máls þarf auðvitað að svara ákveðnum spurningum. Í gærkvöldi, klukkan níu um kvöld, barst nefndarmönnum svar frá atvinnuvegaráðherra við nokkrum spurningum sem var kastað fram. Í svörunum kemur fram að ráðuneytið líti á þetta mál sem þingmannamál sem sé að einhverju leyti ekki svaravert gagnvart hv. atvinnuveganefnd, ekki svaravert af því að þetta sé þingmannamál. Það er nauðsynlegt fyrir nefndina að kalla fyrir nefndina þann sem samdi þetta svar, atvinnuvegaráðherra sem ber ábyrgð á því. (Forseti hringir.) Ég óska eftir því, virðulegur forseti, að kallað verði á atvinnuvegaráðherra hér í þingsal til að hlýða á þessar umræður og taka þátt í atkvæðagreiðslu um þetta mál, sem undir ráðherrann heyrir, eftir einhverjar mínútur eða klukkustundir.